|
Snillingurinn Leiknir frá Vakurstöðum í húsnotkun |
|
|
|
|
Sunnudagur, 06. maí 2012 14:09 |
|
Kynnum með stollti þennan snilling í húsnotkun, afrekaskrá í dóm og keppni plús
staðreyndir í meðaltali hæfileika afkvæma eru með ólíkindum.
Fyrsta sæti fyrir Brokk,Fegurð í reið og Hægt Tölt.
Annað sæti fyrir Tölt og Vilja.
( http://eidfaxi.is/frettir/2011/06/haesta-medaltal-haefileikaeinkunna-tolfraedi )
Sjá myndir og nánari uppl um Leikni undir Stóðhestar.

|
|
Fimmtudagur, 12. apríl 2012 14:02 |
|
Galsi ,Klettur og Leiknir verða í húsnotkun í Hólaborg og Blysfari í sæðingum í
Sandhólaferju. Sjá nánar undir Stóðhestar.
 
 
|
|
|
Laugardagur, 07. apríl 2012 00:35 |
|
Það er komið vor í loft og þá styttist í kynbótasýningar, það var því gaman í dag þegar Árni
Björn Pálsson kom með hana Kötlu okkar í smá pásu frá reið og sýndi okkur hana.
Árni Björn er einungis búin að temja hana í 6 vikur með frábærum árangri, hún er 4 vetra í
vor undan Prinsessu frá Kílhrauni og Þóroddi frá Þóroddsstöðum.


|
|
Þriðjudagur, 31. janúar 2012 00:06 |
|
Glæsistóðhesturinn Aspar frá Fróni fór til Svíþjóðar um helgina, en það var Magnús Skúlason
vinur okkar ásamt Emilia Hirshi á Sólfaxa í Sviss sem eru nýjir eigendur,Magnús mun þjálfa
hann svo hann ætti ekki að vera í vandræðum með fimmgangara næstu árinn.
Við óskum nýjum eigendum til hamingju.

Viðar Ingólfsson Ístölt 2011.
|
|
Fimmtudagur, 29. desember 2011 22:04 |
|
Við óskum vinum og viðskiftavinum gleðilegs árs og þökkum um leið fyrir viðskiftin á árinu sem er að líða, við eru stolt og ánægð með góðan árangur okkar skjólstæðinga á árinu sem senn er á enda og vonumst til að sjá sem flesta af þesum snillingum aftur sem ekki eru búnir að yfirgefa Ísland á árinu.
Með bestu kveðjum Ingimar,Emilia og Addi.

Mynd tekin í Lýtingsstaðahrepp á leið á landsmót í sumar
|
|
Laugardagur, 19. nóvember 2011 23:58 |
|
Þá er frumtamningum lokið þetta haustið, við erum mjög ánægð með útkomuna mörg spennandi
tryppi meðal annars stóðhestur undan Glampa Vatnsleysu og geldingar undan Töfra Selfossi og
Flipa frá litlu Sandvík.
Sofie Sjödin sá um frumtamningar í haust og stóð sig frábærlega tryppin vel tamin og treysta
knapanum mjög vel,við þökkum henni kærlega fyrir góða vinnu.

Ægir frá Vatnsleysu 3 vetra unda Glampa og Æsu Adamdóttur frá Meðalfelli.

Taktur glæsilegur 4 vetra foli undan Töfra Selfossi og Rimmu frá Miðsitju.

Fálki 3 vetra undan Flipa Litlu Sandvík og Femínu Töfradóttur frá Stekkum.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 6 |